Rúrik Gíslason er að æfa undir þjálfaranum Meddy í Dúbaí þessa dagana, en hann er í fríi eftir tímabilið með Sandhausen í þýsku B-deildinni.
Rúrik hefur verið að spila mikið með Sandhausen undanfarið og er liðið búið að vera að prófa hann í hinum ýmsum stöðum.
Rúrik hefur verið að spila mikið með Sandhausen undanfarið og er liðið búið að vera að prófa hann í hinum ýmsum stöðum.
Í síðasta leik byrjaði Rúrik fremstur, þar á undan var hann á vinstri kanti og þar áður í hægri bakverði.
Rúrik var valinn í landsliðshópinn sem fer til Rússlands í sumar og ætlar að vera í toppstandi þegar undirbúningurinn fyrir HM hefst.
Meddy hefur þjálfað marga fræga íþróttamenn í gegnum tíðina og er Nicolas Anelka að æfa hjá honum þessa stundina.
Athugasemdir