Sindri teflir ekki fram liði í 2. deild kvenna í sumar þar sem vöntun er á leikmönnum. Þetta kemur fram í skriflegu svari frá fótboltadeild Sindra við fyrirspurn Fótbolta.net.
Sindri endaði í 5. sæti 2. deildar á síðasta tímabili, efsta sæti B-úrslitanna. Sindri er annað af liðunum sem lék í 2. deild í fyrra sem verður ekki með í ár. Inn í deildina koma KFR og Augnablik.
Sindri endaði í 5. sæti 2. deildar á síðasta tímabili, efsta sæti B-úrslitanna. Sindri er annað af liðunum sem lék í 2. deild í fyrra sem verður ekki með í ár. Inn í deildina koma KFR og Augnablik.
„Aðalástæðan fyrir því að Sindri dró liðið úr keppni er vöntun á leikmönnum. Það er ekki stefna deildarinnar að hafa hærra hlutfall af erlendum leikmönnum en heimamönnum en þess hefði þurft til að halda úti liði í meistara kvenna," segir í svari Sindra.
„Við höfum aðstoðað þá leikmenn sem enn eru hjá okkur við að finna önnur lið en þess má geta að fjórir leikmenn Sindra munu spila með FHL í sumar í meistaraflokki og 2. flokki. Við erum að halda úti æfingum fyrir þessa leikmenn ásamt leikmönnum 3. flokki kvenna sem spila með Austurlandi á Íslandsmóti."
„Framhaldið er óráðið en það er vilji félagsins að tefla aftur fram liði í mfl. kvenna, náist ásættanlegur fjöldi heima leikmanna."
Athugasemdir


