Hætta er á að ekkert ítalskt lið verði í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en það yrði í fyrsta sinn síðan tímabilið 1987-88.
Inter tapaði báðum leikjum sínum gegn norska liðinu Bodö/Glimt í umspilinu; samtals 5-2.
Þetta er í fyrsta sinn sem Inter tapar í útsláttarkeppni fyrir liði sem er ekki í einu af fimm stærstu deildum Evrópu.
„Þetta hringir viðvörunarbjöllum fyrir ítalskan fótbolta. Það yrði algjör hörmung ef öll liðin detta úr leik," segir íþróttafréttamaðurinn Daniele Verri.
La Gazzetta dello Sport, bleika blaðið, segir að Inter hafi engar afsakanir fyrir lélega frammistöðu. Spilamennskan hafi verið fyrirsjáanleg og bitlaus.

Juventus og Atalanta leika í kvöld. Juventus tapaði 5-2 í fyrri leik sínum gegn Galatasaray og Atalanta er tveimur mörkum undir fyrir heimaleik gegn Borussia Dortmund.
Athugasemdir