Gibbs-White, Anderson, Onana og Nmecha á blaði Man Utd - Diomande orðaður við ensku úrvalsdeildina - Cambiaso eftirsóttur
   mið 25. febrúar 2026 12:00
Elvar Geir Magnússon
Terry pirraður yfir því að hafa ekki fengið tækifærið hjá Chelsea
John Terry er fyrrum fyrirliði Chelsea.
John Terry er fyrrum fyrirliði Chelsea.
Mynd: John Terry
John Terry segist pirraður yfir því að hafa ekki komið til greina sem bráðabirgðastjóri Chelsea eftir að Enzo Maresca hvarf á braut frá félaginu.

Terry er fyrrum fyrirliði Chelsea og goðsögn hjá félaginu. Hann er enn tengdur Chelsea á þann hátt að tvisvar í mánuði mætir hann sem gestaleiðbeinandi í akademíu félagsins.

Calum McFarlane, þjálfari U21 liðs Chelsea, var fenginn sem stjóri til bráðabirgða áður en Liam Rosenior tók við stjórastarfinu til frambúðar.

„Ég var pirraður. Calum gerði vel en mér fannst ég eiga að vera hluti af þessu. Þeir sem ráða ákváðu ekki að leita til mín, ég veit ekki ástæðuna," segir Terry.

BBC segir að pirringur Terry tengist meðal annars því að hann sé með UEFA Pro þjálfaragráðu og diplómu frá FIFA í leiðtogastjórnun. Á meðan er McFarlane aðeins með UEFA B gráðu.

Stjórnendur Chelsea töldu þó hentugt að fá McFarlane til að taka við til bráðabirgða þar sem hann og Maresca unnu saman og U21 liðið lék svipað kerfi og aðalliðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner