Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   mið 25. febrúar 2026 14:47
Elvar Geir Magnússon
Hætta við að kaupa Sheffield Wednesday
Hillsborough leikvangurinn í Sheffield.
Hillsborough leikvangurinn í Sheffield.
Mynd: EPA
Það hleðst ofan á vandræði Sheffield Wednesday en fjárfestahópurinn sem var að vinna í að kaupa félagið hefur hætt við. James Bord, fyrrum atvinnumaður í póker, leiddi hópinn.

Hann hefur dregið sig út þar sem verðmæti félagsins er nú talið vera lægra en þær 30 milljónir punda sem tilboð hans hljóðaði upp á. Samkvæmt samkomulagi var ekki hægt að fá verðmiðann lækkaðan.

Sheffield Wednesday hefur verið í greiðslustöðvun síðan í október en félagið var í eigu Dejphon Chansiri í áratug.

Síðasta sunnudag féll liðið úr Championship-deildinni, eftir tap gegn grönnunum í Sheffield United, en ekkert lið hefur fallið svo snemma á tímabilinu í sögu enska boltans. 18 stig hafa verið dregin af liðinu vegna fjárhagsvandamála.

Stjórnendur Sheffield Wednesday þurfa því að finna nýja kaupendur. Það gæti verið bandaríski viðskiptamaðurinn David Storch og hans hópur en hann lýsti því yfir í vikunni að hann hefði enn áhuga á að eignast félagið.

„Við höfum enn mikinn metnað fyrir því tækifæri að hjálpa Sheffield Wednesday að ná fyrri velgengni að nýju," sagði í yfirlýsingu frá Storch og félögum.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 38 23 8 7 78 40 +38 77
2 Middlesbrough 38 20 10 8 59 37 +22 70
3 Ipswich Town 37 19 11 7 66 38 +28 68
4 Millwall 38 20 8 10 52 43 +9 68
5 Hull City 38 19 6 13 59 56 +3 63
6 Wrexham 38 16 12 10 58 50 +8 60
7 Southampton 37 15 12 10 60 48 +12 57
8 Derby County 38 16 9 13 55 48 +7 57
9 Watford 38 14 13 11 50 46 +4 55
10 Birmingham 38 14 11 13 48 48 0 53
11 Swansea 38 15 7 16 44 46 -2 52
12 Norwich 37 15 6 16 51 45 +6 51
13 Stoke City 38 14 9 15 45 40 +5 51
14 Bristol City 38 14 9 15 49 49 0 51
15 Sheffield Utd 38 15 5 18 53 52 +1 50
16 QPR 38 14 8 16 49 60 -11 50
17 Preston NE 38 12 13 13 42 48 -6 49
18 Charlton Athletic 38 12 12 14 36 45 -9 48
19 Blackburn 38 11 9 18 36 49 -13 42
20 Portsmouth 37 10 10 17 36 48 -12 40
21 West Brom 38 10 10 18 39 54 -15 40
22 Oxford United 38 9 12 17 36 49 -13 39
23 Leicester 38 11 11 16 51 60 -9 38
24 Sheff Wed 38 1 9 28 23 76 -53 -6
Athugasemdir
banner