Karlmaður í Austurríki hefur fengið sjö mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm og 1.200 evra sekt (173 þúsund íslenskar krónur) fyrir að taka leynileg myndbönd með földum myndavélum í búningsklefa kvennaliðs Altach.
Þá þarf hann samkvæmt dómnum að greiða hverjum leikmanni um 90 þúsund krónur í skaðabætur. Maðurinn er ekki nafngreindur en starfaði fyrir Altach og var meðal fremstu fótboltadómara Austurríkis.
Hann kom meðal annars fyrir myndavél í sturtuklefa og líkamsræktarsal.

Reið yfir dómnum
Eleni Rittmann, fyrrum leikmaður Altach sem nú spilar fyrir Evian í Frakklandi, er reið yfir dómnum og finnst hann alltof vægur
„Þetta gerir mig orðlausa. Við töldum okkur öruggar í búningsklefanum okkar en þetta skaðaði friðhelgi okkar svo mikið að sumar okkar finna ekki lengur fyrir öryggi í almenningssturtum," segir Rittmann.
„Meðal þeirra sem voru myndaðar voru undir lögaldri. Finnst okkur þessi dómur vera fordæmisgefandi?"
Um 30 leikmenn voru greindir á upptökunum og segir Michaela Schmidt, ráðherra íþróttamála í Austurríki, að brot mannsins séu viðurstyggileg. Verjandi mannsins segir að það sé staðfest að myndirnar og myndböndin sem voru tekin í klefanum hafi ekki farið til þriðja aðila og nú sé búið að eyða þeim.
Athugasemdir