Í gær komust fyrstu fjögur liðin áfram úr umspilinu fyrir 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Í kvöld komast seinni fjögur liðin áfram.
Líklega verða allra augu á Madríd í kvöld þar sem Real Madrid tekur á móti Benfica. Það var mikill hiti í fyrri leik þessara liða sem endaði með 1-0 sigri Madrídarstórveldisins.
Jose Mourinho, stjóri Benfica, er í leikbanni og var Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, settur í bann í byrjun vikunnar eftir að hann var ásakaður um kynþáttafordóma í garð Vinicius, stjörnu Real Madrid. UEFA er með málið til rannsóknar og Prestianni spilar ekki.

Dortmund og PSG eru í góðum málum fyrir leiki kvöldsins og það sama má segja um Galatasaray sem er með góða forystu gegn Juventus.
miðvikudagur 25. febrúar
17:45 Atalanta - Dortmund (0-2)
20:00 Juventus - Galatasaray (2-5)
20:00 PSG - Mónakó (3-2)
20:00 Real Madrid - Benfica (1-0)
Athugasemdir