Christian Bjarmi Alexandersson er efnilegur vinstri bakvörður sem fæddur er árið 2007. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er áhugi á honum úr Bestu deildinni.
Hann er leikmaður Grindavíkur og steig sín fyrstu skref í meistaraflokki 2024. Þá kom hann við sögu í 18 deildarleikjum og einum bikarleik. Á síðasta tímabili urðu leikirnir einungis átta talsins, en hann handleggsbrotnaði nokkuð snemma síðasta sumar og missti af mörgum leikjum.
Síðasta sumar spilaði hann sinn fyrsta yngri landsleik þegar hann kom við sögu með U19 gegn Englandi.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur ÍBV áhuga á Christian og bæði Breiðablik og Valur hafa fylgst með honum. Samningur hans við Grindavík rennur út eftir komandi tímabili.
Christian er frekar lágvaxinn bakvörður, öflugur tæknilega og býr yfir mikill hlaupagetu.
Athugasemdir