Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
   mið 25. febrúar 2026 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Forseti Benfica: Hann er allt annað en rasisti
Úr fyrri leik Benfica og Real Madrid.
Úr fyrri leik Benfica og Real Madrid.
Mynd: EPA
Rui Costa, fyrrum landsliðsmaður Portúgals og núverandi forseti Benfica, hefur komið Gianluca Prestianni til varnar.

Prestianni var á mánudag dæmdur í bráðabirgðabann og spilar ekki seinni leikinn gegn Real Madrid í Meistaradeildinni eftir að hann var ásakaður um rasisma í garð Vinicius, leikmanns Real Madrid. Rannsókn stendur nú yfir á málinu.

Costa ræddi við fjölmiðla fyrir leikinn og kom þá Prestianni til varnar.

„Prestianni er kallaður rasisti en hann er allt annað en það. Ég get fullvissað ykkur um það," sagði Costa.
Athugasemdir
banner