Gibbs-White, Anderson, Onana og Nmecha á blaði Man Utd - Diomande orðaður við ensku úrvalsdeildina - Cambiaso eftirsóttur
   mið 25. febrúar 2026 12:55
Elvar Geir Magnússon
Staðfest að Mbappe verður ekki með í kvöld - Gæti þurft minniháttar aðgerð
Mynd: EPA
Kylian Mbappe, sóknarmaður Real Madrid, verður ekki með í seinni leiknum gegn Benfica í umspili Meistaradeldarinnar í kvöld.

Hann hefur verið að glíma við hnémeiðsli og hefur misst af nokkrum leikjum. Hann var ekki með í spænska Ofurbikarnum og var hvíldur í sigrinum gegn Real Sociedad fyrir tíu dögum.

Hann spilaði allan fyrri leikinn gegn Benfica í Lissabon en þar vann Real Madrid 1-0 útisigur. Hann lék svo gegn Osasuna um síðustu helgi.

Það mun vera ljóst að Mbappe muni ekki heldur spila gegn Getafe um helgina en flestir fjölmiðlar telja að hann snúi aftur í mars.

El Chiringuito segir að Mbappe þurfi mögulega á minniháttar aðgerð að halda ef staðan verður ekki betri. Hann hefur verið að spila í gegnum meiðslin í þrjá mánuði og þau halda áfram að angra hann.

Það er ekki vafi á því að Mbappe er með hugann við að vera á flugi þegar kemur að HM í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner