Gibbs-White, Anderson, Onana og Nmecha á blaði Man Utd - Diomande orðaður við ensku úrvalsdeildina - Cambiaso eftirsóttur
   mið 25. febrúar 2026 16:03
Elvar Geir Magnússon
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins í kvöld þrátt fyrir gula viðvörun
Frá snjóleik í Fossvoginum á síðasta ári.
Frá snjóleik í Fossvoginum á síðasta ári.
Mynd: Víkingur
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla fer fram í kvöld. Íslandsmeistarar Víkings taka þar á móti Lengjudeildarliði Þróttar klukkan 19.

Leikurinn verður í beinni textalýsingu hér á síðunni

Gul veðurviðvörun vegna talsverðrar snjókomu tók gildi á höfuðborgarsvæðinu í dag og gildir til sjö í kvöld. Hún setur þó ekki strik í reikninginn varðandi leikinn.

Víkingur hefur tilkynnt að leikurinn fari fram á tilsettum tíma á heimavelli hamingjunnar. Hinsvegar er búið að fresta leik kvennaliðs Víkings gegn Breiðabliki.

Víkingar verða án nokkurra lykilmanna sem eru með íslenska landsliðinu í Mexíkó. Þar á meðal er Gylfi Þór Sigurðsson.

Víkingur fékk tíu stig úr fjórum leikjum í riðlakeppni mótsins. Liðið vann ÍR, Leikni og Fjölni en gerði jafntefli við Fram. Þróttur fékk sjö stig úr sínum þremur leikjum í riðlakeppninni. Liðið vann KR og Val en gerði jafntefli við Fylki.

KR vann Reykjavíkurmótið í fyrra eftir úrslitaleik gegn Val.


Athugasemdir
banner
banner