Gibbs-White, Anderson, Onana og Nmecha á blaði Man Utd - Diomande orðaður við ensku úrvalsdeildina - Cambiaso eftirsóttur
   mið 25. febrúar 2026 11:09
Elvar Geir Magnússon
Þjálfari Mexíkó: Allir öruggir á leiknum gegn Íslandi
Hallgrímur Mar Steingrímsson á æfingu Íslands á keppnisvellinum í Mexíkó.
Hallgrímur Mar Steingrímsson á æfingu Íslands á keppnisvellinum í Mexíkó.
Mynd: KSÍ
Uppselt er á leikinn.
Uppselt er á leikinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mexíkó og Ísland mætast í vináttulandsleik í kvöld. Leikurinn hefst kl. 20:00 að staðartíma í Queretaro, sem er kl. 02:00 í nótt að íslenskum tíma.

Leikurinn verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net og sýndur á Sýn

Íslenska landsliðið, sem er að mestu skipað leikmönnum úr Bestu deildinni þar sem leikið er utan glugga, hefur verið við æfingar í Queretaro í vikunni.

Borgin er hátt í 2 þúsund metra yfir sjávarmáli og leikmenn íslenska liðsins hafa fundið vel fyrir þunna loftinu á æfingum í vikunni samkvæmt heimasíðu KSÍ.

Óeirðir hafa verið víða í Mexíkó síðustu daga eftir að glæpaforinginn Nemesio Oseguera Cervantes féll í bardögum við mexíkóska herinn. Mörgum kappleikjum í landinu hefur verið frestað.

Landsleikurinn mun hinsvegar fara fram og landsliðsþjálfari Mexíkó lofar því að allir verði öruggir.

„Við erum meðvituð um viðkvæmt ástand en mexíkóska fótboltasambandið segir að öryggi allra verði tryggt," segir landsliðsþjálfarinn Javier Aguirre.

„Við höfum æft í afslöppuðu umhverfi, slökum á og tölum um íþróttir. Það eru skilaboðin sem ég get sent til stuðningsmanna sem fótboltaþjálfari."

Það er uppselt á leikinn sem er framundan, yfir 30 þúsund áhorfendur verða samankomnir á Estadio Corregidora.

Frá æfingu Íslands á keppnisvellinum í gær:

Athugasemdir
banner
banner