Ruben Loftus-Cheek hefur deilt mynd af sér eftir meiðslin ljótu sem hann varð fyrir á dögunum.
Loftus-Cheek kjálkabrotnaði og missti nokkrar tennur eftir að hafa lent í samstuði í viðureign AC Milan og Parma í ítalska boltanum á sunnudag.
Loftus-Cheek kjálkabrotnaði og missti nokkrar tennur eftir að hafa lent í samstuði í viðureign AC Milan og Parma í ítalska boltanum á sunnudag.
Hann var festur í spelku á bæði höfði og hálsi áður en hann var fluttur af leikvanginum. Atvikið gerðist snemma leiks og lenti hann í samstuði við markvörð Parma, Edoardo Corvi, þegar hann fór í skallabaráttu.
Samkvæmt Sky Italia mun hann þurfa gangast undir aðgerð og verður frá keppni í einhverja mánuði. Enskir miðlar segja komandi heimsmeistaramót vera jafnframt í hættu.
Hér fyrir neðan má sjá myndina sem hann deildi.
Ruben Loftus-Cheek has successfully got surgery for his fractured jaw.
— The Touchline | ???? (@TouchlineX) February 23, 2026
Wishing him a fast recovery. pic.twitter.com/4bOfKfhjRZ
Athugasemdir



