ESPN gerði lista árið 2019 yfir þá leikmenn sem voru næstir í röðinni, þeir sem áttu að taka yfir fótboltaheiminn eftir yfirburði Cristiano Ronaldo og Lionel Messi sem höfðu einokað öll einstaklingsverðlaunin í fjöldamörg ár.
„Hverjir eru næstir? Hverjir munu taka þeirri áskorun að verða bestir í fótboltaheiminum?" spurði ESPN.
„Hverjir eru næstir? Hverjir munu taka þeirri áskorun að verða bestir í fótboltaheiminum?" spurði ESPN.
Fréttamenn þeirra tóku saman lista og það er athyglisvert núna, sjö árum síðar, að skoða topp tíu. Á hvaða stað eru þeir í dag?
10. Luka Jovic
Jovic var líkt við Luis Suarez í greininni eftir að hafa raðað inn mörkum með Eintracht Frankfurt í Þýskalandi. Hann var keyptur til Real Madrid en náði sér engan veginn á strik. Eftir að hafa leikið aftur með Frankfurt, með Fiorentina og AC Milan þá er hann núna hjá AEK Aþenu í Grikklandi þar sem hann er að skora nokkuð mikið.
9. Marcus Rashford
Á þeim tíma sem listinn var birtur hafði Rashford fest sig í sessi í aðalliði Manchester United eftir að hafa komið upp í gegnum unglingastarf félagsins. Hann skoraði 17 mörk í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2019/20, sem var hans besta tímabil til þessa, og endurtók þann árangur 2022/23. Í kjölfarið dalaði staða hans innan liðsins. Ágreiningur við Ruben Amorim, fyrrum stjóra Man Utd, varð til þess að sóknarmaðurinn gekk til liðs við Barcelona á láni þar sem hann hefur fundið taktinn aftur.
8. Gianluigi Donnarumma
Donnarumma var kallaður arftaki samlanda síns, Buffon, og stóð svo sannarlega undir þeim væntingum þegar hann leiddi Ítali til sigurs á Evrópumótinu 2021. Hetjudáðir hans í vítaspyrnukeppninni gegn Englandi tryggðu honum sess meðal bestu markvarða heims. Síðan hann var nefndur í þessu samhengi hefur hann skipt um félag tvisvar – fyrst þegar hann gekk til liðs við Paris Saint-Germain og síðar Manchester City þar sem hann er í dag einn besti markvörður ensku úrvalsdeildarinnar.
7. Frenkie de Jong
De Jong tryggði sér stór félagaskipti til Barcelona eftir að hafa heillað mikið með Ajax. Hann er nú á sínu sjöunda tímabili hjá katalónska stórliðinu og gegnir lykilhlutverki í liði Hansi Flick. Þetta hefur ekki alltaf verið auðvelt hjá þessum hæfileikaríka miðjumanni í Barcelona en hann hefur komist í gegnum ýmsar hindranir. Hann var næstum því seldur til Manchester United fyrir nokkrum árum en valdi að vera áfram í Katalóníu.
6. Vinicius Junior
Vinicius var nýkominn til Real Madrid þegar hann var valinn á listann. Eftir þrjú tiltölulega róleg tímabil sprakk hann út og vakti heimsathygli með magnaðri frammistöðu á vellinum, þar sem mörk og stoðsendingar létu ekki á sér standa. Brasilíumaðurinn, sem margir líktu við Neymar, festi sig í sessi sem ein stærsta stjarna spænska stórveldisins. Frá og með tímabilinu 2021/22 hefur hann skilað 20 mörkum eða meira á hverju tímabili og stefnir á að gera það sama á þessu keppnistímabili.
5. Kai Havertz
Havertz var hylltur sem hæfileikaríkasti þýski leikmaður sinnar kynslóðar eftir að hafa slegið í gegn með Bayer Leverkusen og vakti mikinn áhuga stórliða víða um Evrópu. Hann samdi við Chelsea þar sem hann skoraði sigurmarkið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Manchester City árið 2021. Sumarið 2023 gekk hann síðan til liðs við Arsenal þar sem hann hefur verið mikið upp og niður. Átti að gera meira en hann hefur gert og er klárlega ekki með bestu leikmönnum í heiminum.
4. Trent Alexander-Arnold
Alexander-Arnold varð lykilhlekkur í leikskipulagi Jurgen Klopp hjá Liverpool og átti stóran þátt í því að uppeldisfélag hans vann bæði ensku úrvalsdeildina og Meistaradeildina. Hann batt síðan enda á tíma sinn á Anfield þegar hann samdi við spænska stórliðið Real Madrid sumarið 2025. Þar hefur hann verið í brasi til að byrja með en hefur nægan tíma til að rétta úr kútnum. Er klárlega einn besti hægri bakvörður í heimi.
3. Matthijs de Ligt
De Ligt skaust fram á sjónarsviðið á svipaðan hátt og fyrrum samherji hans úr Ajax-akademíunni, De Jong. Ferill hans hefur þó ekki verið jafn stöðugur og hjá miðjumanninum, enda hefur hann farið á milli félaga á undanförnum árum og samið við Juventus, Bayern München og Manchester United. Var fyrirliði í Ajax-liði sem var hársbreidd frá því að komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. ESPN bjóst við því að hann yrði besti miðvörður í heimi en hann er ekki á þeim stað, svolítið langt frá því eins og er þó hann hafi átt gott tímabil núna þegar hann var heill.
2. Jadon Sancho
Sancho átti sitt besta tímabil á ferlinum í kjölfar lista ESPN og vakti mikinn áhuga stórliða víða um Evrópu. Manchester United vann á endanum baráttuna um hann. Tími hans á Old Trafford varð þó aldrei eins og vonast var til og honum tókst ekki að endurtaka frammistöðuna sem hann sýndi hjá Dortmund. Hann er nú á sínu þriðja láni frá Manchester United, eftir að hafa áður farið á lán til Dortmund og Chelsea. Nú spilar hann hjá Aston Villa. Samningur hans við United rennur út eftir tímabilið og félagið ætlar ekki að endursemja við - mikil vonbrigði.
1. Kylian Mbappe
Mbappé var efstur á lista ESPN og lýst sem „framtíðar Ballon d’Or-sigurvegara“. Þótt hann hafi enn ekki hampað þeim virtu einstaklingsverðlaunum hefur Frakkinn sýnt frammistöðu sem sannarlega er í anda þeirra, með yfir 30 mörk í öllum keppnum á hverju tímabili síðan honum var spáð forystuhlutverki í alþjóðlegum fótbolta. Hann gekk til liðs við Real Madrid árið 2024 í draumafélagaskiptum og hélt áfram að skora – með 44 mörk á sínu fyrsta tímabili á Spáni. Á þessu tímabili hefur hann þegar skorað 38 mörk og undirstrikað stöðu sína sem einn besti sóknarmaður heims. Á örugglega eftir að vinna Ballon d'Or í framtíðinni.
Þetta er svo sannarlega athyglisverður listi en í heildina taldi hann 30 leikmenn. Hinir sem voru á listanum en komust ekki á topp tíu voru:
Leon Bailey, Ezequiel Barco, Rodrigo Bentancur, Federico Chiesa, Ousmane Dembele, Joao Felix, Phil Foden, Callum Hudson-Odoi, Moise Kean, Diego Lainez, Lautaro Martinez, Eder Militao, Exequiel Palacios, Lucas Paqueta, Christian Pulisic, Ismaila Sarr, Youri Tielemans, Sandro Tonali, Cengiz Under, Nicolo Zaniolo.
Athugasemdir




