lau 11. maí 2019 19:19
Hafliði Breiðfjörð
Óhugnaleg mynd náðist af höfuðmeiðslum Sigurjóns
Sigurjón í leik með Grindavík.
Sigurjón í leik með Grindavík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Góðar fréttir voru að berast frá Vestmannaeyjum því Sigurjón Rúnarsson leikmaður Grindavíkur er búinn að fara í sneiðmyndatöku og ljóst að hann er heill heilsu að því er kemur fram í tilkynningu frá Grindavík.

Sigurjón lenti í samstuði við Guðmund Magnússon í 2-2 jafntefli liðsins við ÍBV sem var að ljúka. Vegna þessa þurfti að stöðva leikinn á 9. mínútu leiksins og ekki var hægt að hefja leik fyrr en 21 mínútu síðar.

Sigurjón lá á vellinum þar til hægt var að flytja hann af brott í sjúkrabíl en svo bárust góðar fréttir frá Eyjum.

„Sigurjón er búinn í sneiðmynd. Fór betur en á horfðist. Hann er heill en verulega stífur og verður í einhverja daga. Næsta vika verður erfið," sagði í tilkynningu félagsins.

Þá hefur verið birt mynd af byltunni sem hann fékk.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner