Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
Óskar Hrafn: Svona frammistaða í fyrra hefði skilað okkur 4-3 tapi
Diljá Ýr: Mörkin liggja í loftinu
Ingibjörg: Maður lærir ótrúlega mikið af þessum leikjum
Sandra María: Sallaróleg og veit að mörkin koma
Viggó ánægður að vera kominn aftur heim
Aleksandar Linta: Eigum séns gegn Val
Jói Kalli: Litlir í okkur í fyrri hálfleik
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
banner
   fös 13. ágúst 2010 07:25
Magnús Már Einarsson
Bjarni Guðjónsson: Við erum á fínu róli
FH - KR í úrslitum VISA-bikarsins klukkan 18:00 á morgun
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
,,Við ætlum að vinna þennan titil eins og fyrir tveimur árum og stefnan er sett á það," sagði Bjarni Guðjónsson fyrirliði KR við Fótbolta.net en liðið mætir FH í úrslitum VISA-bikarsins klukkan 18:00 á Laugardalsvelli á morgun.

,,Við erum fullir af sjálfstrausti. Okkur hefur gengið vel í undanförnum leikjum, náð að skora svolítið af mörkum og fengið lítið á okkur. Við erum á fínu róli og fullir tilhlökkunar að koma inn í þennan leik."

,,Ég ætla að vona að það verði góð mæting. Ég veit að KR-ingar ætla að fjölmenna og ég hugsa að FH-ingar geri það sama," sagði Bjarni en jafnvel er búist við að áhorfendamet verði sett í þessum bikarúrslitaleik.

,,Það væri mjög gaman ef það myndi gerast og það er ekkert sem mælir á móti því að svo verði. Svo hefur maður hitt fullt af fólki sem er hvorki FH-ingar né KR-ingar sem ætla að mæta á völlinn af því að það eru tvö flott lið að spila á skemmtilegum degi um sumar á Íslandi."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður með upphitunarþátt fyrir bikarúrslitaleikinn milli 12 og 14 á laugardag. Egill Helgason, Friðrik Dór Jónsson, Gunnar Kristjánsson og Hjörvar Hafliðason verða á meðal gesta.
Slapp
banner