Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 01. janúar 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ancelotti: Frábært próf fyrir okkur
Carlo Ancelotti
Carlo Ancelotti
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, stjóri Everton, er spenntur fyrir leiknum gegn Manchester City í dag en hann segir að þetta verði próf fyrir City-menn.

Ancelotti tók við Everton á dögunum en hann hefur unnið fyrstu tvo leikina.

Guardiola og hans menn hjá City hafa átt í erfiðleikum og eru fjórtán stigum á eftir toppliði Liverpool en Ancelotti segir að þrátt fyrir það sé City með mikil gæði.

„Þetta er frábært próf fyrir okkur til að sjá hvar við erum," sagði Ancelotti.

„City er kannski ekki sama formi og á síaðsta tímabili en Liverpool hefur unnið alla leiki fyrir utan einn og það er munurinn."

„City er þrátt fyrir þetta frábært lið með frábæran stjóra og það verður erfitt að eiga við þetta lið en ég hef trú á því að við munum gera okkar besta

„Það er gott að fá þetta próf á þessu augnabliki og svo einnig gegn Liverpool. Við erum ánægðir með að berjast við toppliðin á Englandi og í Evrópu,"
sagði Ancelotti.
Athugasemdir
banner
banner
banner