Skoski stjórinn David Moyes mun fá ágætis summu ef honum tekst að halda West Ham í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Manuel Pellegrini var látinn fara á dögunum og Moyes ráðinn inn í hans stað en aðeins eru liðnir nítján mánuðir frá því Moyes var síðast við stjórnvölin hjá West Ham.
Samningur Moyes er áhugaverður en hann mun fá 2 milljónir punda í veskið ef honum tekst að halda West Ham uppi.
West Ham er í 17. sæti með 19 stig eins og staðan er núna en Moyes tókst einmitt að bjarga liðinu frá falli síðast þegar hann stýrði liðinu.
Liðið mætir Bournemouth á London-leikvanginum í dag en það verður fyrsti leikur Moyes.
Athugasemdir



