Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 01. janúar 2020 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Stuðningsmenn Liverpool völdu Crouch í lið áratugarins hjá Tottenham
Peter Crouch var efstur í vali á framherja í liði áratugarins
Peter Crouch var efstur í vali á framherja í liði áratugarins
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Liverpool fóru mikinn á Twitter á dögunum er enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham valdi framherja í lið áratugarins en valið stóð á milli þriggja leikmanna.

Peter Crouch, Harry Kane og Jermain Defoe komu til greina en stuðningsmenn Liverpool ákváðu að taka þátt í kjörinu á Twitter og kusu Crouch.

Crouch skoraði 24 mörk á tveimur tímabilum með Tottenham en hann fékk meirihluta atkvæða.

Kane, sem er fyrirliði Tottenham, og hefur verið burðarstólpur liðsins síðustu ár hefur skorað 181 mark í 277 leikjum með Tottenham og því augljósasti kosturinn.

Þegar fimmtán tímar voru eftir ákváðu stuðningsmenn Liverpool að hjálpa Crouch og fékk hann samtals 61 prósent atkvæða en Kane aðeins 32 prósent.


Athugasemdir
banner
banner