Manchester City er að íhuga að fá Enzo Fernandez til liðs við sig í sumar. TalkSport greinir frá.
Topplið úrvalsdeildarinnar ætlar að næla í miðjumann í sumar og Fernandez er á óskalistanum. Það yrðu meiri líkur á því ef Enzo Maresca tekur við liðinu af Pep Guardiola. Þeir unnu saman hjá Chelsea þar til Maresca var rekinn um áramótin.
Fernandez hefur ekki farið leynt með áhuga sinn á að ganga til liðs við Real Madrid. Hann á sex ár eftir af samningi sínum hjá Chelsea en hann gekk til liðs við félagið frá Benfica árið 2023 fyrir rúmlega 100 milljónir punda.
Elliot Anderson, miðjumaður Nottingham Forest, er efstur á óskalista City.




