Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fim 23. apríl 2026 13:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu stórkostlegt mark Krumma - KR að ganga frá ÍBV í fyrri hálfleik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR er í heimsókn hjá ÍBV í Eyjum þessa stundina og eru að fara hamförum.

KR komst yfir strax á fimmtu mínútu þegar Marcel Zapytowski varði boltann út í teiginn en Arnór Ingvi Traustason og Pisco voru í baráttunni og boltinn hafnaði í netinu.

Lestu um leikinn: ÍBV 2 -  6 KR

Rúmlega tíu mínútum síðar tvöfaldaði Hrafn Tómasson metin þegar hann skoraði glæsilegt mark með skoti fyrir utan teiginn. Markið má sjá frá Vísi hér að neðan.

Aron Sigurðarson bætti síðan þriðja markinu við eftir hálftíma leik. Hann fékk boltann eftir innkast og fékk nóg pláss til að athafna sig og skoraði með skoti úr D-boganum.


Slapp
banner
banner