Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fim 23. apríl 2026 12:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Yamal frá út tímabilið
Mynd: EPA
Barcelona hefur staðfest að Lamine Yamal muni ekki geta tekið meiri þátt á tímabilinu vegna meiðsla.

Yamal skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu gegn Celta Vigo í spænsku deildinni en hann þurfti að fara af velli vegna meiðsla strax í kjölfarið.

Þessi 18 ára gamli leikmaður er lykilmaður í liði Barcelona og þetta er því mikið áfall fyrir liðið fyrir endasprettinn. Barcelona er með 9 stiga forystu á Real Madrid þegar sex umferðir eru eftir.

Hann er einnig lykilmaður í spænska landsliðinu og hann mun að öllum líkindum vera klár í slaginn fyrir HM í sumar.
Slapp
banner
banner