Vonar að liðin tvö nái að hámarka stemninguna í Garðabæ
„Leikurinn leggst rosalega vel í mig, skemmtilegt að fá stóran leik snemma í mótinu. Ég held að bæði lið séu á góðum stað. Við spiluðum leik við þá í úrslitum Þungavigtarbikarsins sem var mjög skemmtilegur og góður fótboltaleikur. Ég á ekki von á öðru í þessum leik," segir Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, sem mætir Víkingi í kvöld í stórleik 3. umferðar í Bestu deildinni.
Leikurinn hefst klukkan 19:15 og fer fram á Víkingsvelli.
Leikurinn hefst klukkan 19:15 og fer fram á Víkingsvelli.
„Nálgunin okkar verður svipuð, við leggjum leikinn ekki nákvæmlega eins upp, en yfirleitt reynum við að nálgast leikina yfir veturinn með sama hætti og leikina yfir sumarið. Svo er misjafnt hvað menn taka mikla áhættu báðu megin. Helst myndi maður vilja að menn komi fullir af hugrekki og sjálfstrausti og þori að spila leikinn eins."
Vill öflugri varnarleik
Jökull er mjög ánægður með fyrstu tvo leiki síns liðs, enda er Stjarnan með fullt hús stiga.
„Heilt yfir er ég mjög ánægður, við höfum verið töluvert sterkari aðilinn í báðum leikjum. Í síðasta leik vann FH fyrir einu marki og það mark erum við ósáttir með, hefðum átt að loka því. Sama fyrir norðan, við vorum aðeins of opnir varnarlega. Það er eitthvað sem ég held að komi, við vorum orðnir sterkari varnarlega eftir því sem leið á veturinn, ég held að það komi núna í næstu leikjum."
Hló að spurningunni um lágblokk
Í fyrstu tveimur leikjum Víkings hefur andstæðingurinn farið í fimm manna lágblokk. Heldur þú að Stjarnan muni leita eitthvað í það í leiknum? Jökull hló eftir að spurningin var borinn upp, og tók svo til máls.
„Þeir vilja ná yfirtölu (e. overload) frammi hjá sér, vilja sækja með fimm uppi í efstu línu. Það væri mjög skrítið ef ég myndi segja að það gæti ekki gerst að við endum á einhverjum tímapunkti með fimm á móti þeim fimm. En við spilum ekki þannig að við leggjumst, bíðum og leyfum andstæðingnum að vera með stjórn á boltanum með einhverri lágblokk. En við þurfum að geta dílað við það þegar það gerist. Þá getur alveg gerst að við dettum niður í fimm manna línu til að svara því sem þeir eru að gera. Það er allur gangur á því og það gerðist alveg í þessum gegn þeim síðast og hefur yfirleitt gerst á móti þeim. Það getur líka gerst hærra á vellinum ef menn fara í maður á mann varnarleik á móti þeim í 3-2-5 uppbyggingunni þeirra. En við ætlum ekki að leggjast og bjóða þeim hærra á völlinn eins og liðin hafa verið að gera."
Spila leikinn á sínum forsendum
Er eitthvað sem þú vilt taka frá þeim? Er eitthvað augljóst sem má ekki gerast á móti Víkingi?
„Auðvitað er mjög gott ef Niko fær ekki frían skalla inni í teig og ef Gylfi fær ekki frítt skot inn í teig. En annars er fókusinn miklu meira á okkur sjálfum, hvernig við viljum nálgast leikinn, hvað viljum gera, miklu meira en á þeim. Við förum alveg yfir Víkingana og það sem þeir vilja gera, en við ætlum að spila þennan leik á okkar forsendum."
Blanda úr tveimur íþróttum og stemningin hámörkuð
Það voru Stjörnumenn sem mættu norður á Akureyri í fyrsta leik og stemningin var mjög góð gegn FH. Ertu með skilaboð til stuðningsmanna?
„Það er búin að vera tryllt stemning, það voru mikil læti fyrir norðan, þeir sem komu mættu með trommur og fána. Það var svo tryllt stemning á FH leiknum og það skilar sér alveg svakalega til liðsins. Ég er vongóður að menn mæti vel á Víkingsvöllinn, menn mættu vel líka á körfuboltaleikinn á Sauðárkróki. Ég er að vona að við séum að ná að búa til blöndu úr tveimur íþróttum og hámörkum stemninguna sem er í boði í Garðabæ hjá þessum tveimur liðum."
Berst stemningin á milli fótboltans og körfuboltans?
„Ég held hún geri það að einhverju leyti, ekki fullkomlega. Það eru einhverjir sem mæta bara á körfuna og einhverjir bara á fótboltann. En það eru síðan mjög afgerandi aðilar í stúkunni sem mæta á báða viðburði, þannig það er alveg klárlega að berast eitthvað á milli."
Körfuboltaliðið vann á Sauðárkróki þar sem flestir töldu að Tindastóll myndi vinna. Víkingur er að margra mati sigurstranglegra liðið í leiknum í kvöld, fáið þið einhvern innblástur frá sigri körfuboltaliðsins?
„Við horfum ekki á okkur þannig, við horfum á þetta sem jafnan leik og tökum ekki þá nálgun að við þurfum að kýla upp fyrir okkur. Við mætum í alvöru toppslag sem ég held að verði mjög skemmtilegur," segir Jökull að lokum.


