Keflavík er er að sækja styrkingu í raðir Stjörnunnar fyrir baráttuna í Bestu deildinni þetta sumarið. Í hlaðvarpinu Dr. Football kom fram að kantmaðurinn Alpha Conteh frá Sierra Leon væri á leið til Keflavíkur frá Stjörnunni á láni.
Alpha sem er 25 ára gamall gekk til liðs við Stjörnuna í sumarglugganum i fyrra frá liði Neftçi PFK í Aserbaídsjan tók þátt í sjö leikjum með Stjörnunni í fyrra þegar liðið endaði í 2.sæti Bestu deildarinnar.
Hann hefur verið í leikmannahópi Stjörnunnar í báðum leikjum liðsins það sem af er móti í ár en aðeins komið við sögu í 3-2 sigri gegn FH síðastliðinn föstudag.
Keflavík situr á botni Bestu deildinnar eftir 3 leiki með 1 stig en stigið sótti liðið í gærkvöldi með markalausu jafntefli gegn Breiðablik á HS Orkuvellinum.



