Víkingur fékk umdeilda vítaspyrnu gegn KA í 2. umferð Bestu deildarinnar. Ekki eru allir sammála um þann dóm en Steinþór Már Auðunsson, Stubbur, í marki KA var dæmdur brotlegur gegn Valdimar Þór Ingimundarsyni inn á vítateig KA.
Dómarastjóri KSÍ, Þóroddur Hjaltalín, sagði við Fótbolta.net að það hefði verið rétt ákvörðun að dæma vítaspyrnu. Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, ræddi við Fótbolta.net í gær og var hann spurður út í dóminn.
Eftir leikinn gegn KA hafði hann sagði að Víkingur hefði átt inni vítaspyrnu þar sem meistararnir fengu ekki vítaspyrnu gegn Breiðabliki undir lok leiks, en þar hefði átt að dæma vítaspyrnu.

Ertu búinn að skoða atvikið aftur?
„Já, ég er búinn að skoða þetta fram og til baka. Ég er alveg sammála þeim dómi. Valdi nær snertingu á boltann og þó svo að boltinn endi í Stubbi, þá er hann ekki með neitt vald á líkamanum sínum, þetta er glæfralegt úthlaup hjá honum, er of seinn í boltann. Hann klippir manninn niður eftir að Valdi nær snertingu á boltann. Mér finnst þetta flokkast undir 'reckless challenge' inn í teig. Mjög vel gert hjá dómurunum að sjá það."
„Þannig við eigum ennþá einn (vítadóm) inni," segir Sölvi og hlær.