Við fyrstu skoðun er talið að Yamal spili ekki meira með Barcelona á tímabilinu en verði klár fyrir HM.
Lamine Yamal fer í frekari skoðun í dag en þessi 18 ára leikmaður meiddist í sigri Barcelona gegn Celta Vigo í gær.
Yamal lagðist á grasið eftir að hann skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu og var tekinn af velli.
Yamal lagðist á grasið eftir að hann skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu og var tekinn af velli.
Samkvæmt fréttum benda fyrstu skoðanir sem læknar Barcelona framkvæmdu til þess að Yamal hafi hlotið slit í lærvöðvanum. Ef sú er raunin verður hann frá í fimm vikur og spilar ekki meira með Börsungum á tímabilinu.
Yamal ætti þá að vera orðinn klár í HM í sumar en þetta ætti allt að skýrast betur eftir að hann hefur gengist undir skoðun í dag. Börsungar krossleggja fingur og vona að hann geti snúið aftur áður en tímabilinu lýkur.
Það yrði mikill skellur fyrir Yamal og Spán ef hann gæti ekki spilað með á HM. Já og í raun skellur fyrir fótboltaunnendur enda er Yamal einn besti leikmaður heims.




