Vigdís Lilja Kristjánsdóttir hefur framlengt samning sinn til næstu tveggja ára hjá belgíska félaginu Anderlecht.
Vígdís sem fagnar 21 árs afmæli sínu í dag gekk til liðs við Anderlecht frá Breiðabliki í byrjun síðasta árs.
Vígdís sem fagnar 21 árs afmæli sínu í dag gekk til liðs við Anderlecht frá Breiðabliki í byrjun síðasta árs.
Hún skoraði þrjú mörk í þremur deildarleikjum á síðustu leiktíð og hefur farið gríðarlega vel af stað á þessu tímabili og skorað fimm mörk í fjórum leikjum. Þá kom hún að fimm mörkum með beinum hætti í sex leikjum í Evrópubikarnum.
Hún verður í eldlínunni þegar Anderlecht mætir St. Liege í deildinni á laugardaginn. Anderlecht er í 2. sæti með 26 stig, fjórum stigum á eftir Leuven.
Kristjánsdóttir 2028. ????? pic.twitter.com/BE7en6WGO6
— RSCA Women (@rscawomen) April 23, 2026



