Keflavík og Breiðablik gerðu jafntefli í 3. umferð Bestu deildarinnar í kvöld. Leikurinn var nánast tíðindalaus og markalaust í fyrsta grasleik Bestu deildarinnar þetta tímabilið.
Vallaraðstæður höfðu sitt að segja, völlurinn var erfiður og það bitnaði klárlega mikið á gæðum leiksins.
Vallaraðstæður höfðu sitt að segja, völlurinn var erfiður og það bitnaði klárlega mikið á gæðum leiksins.
Lestu um leikinn: Keflavík 0 - 0 Breiðablik
„Auðvitað var þetta ekki frábært. Völlurinn er svosem allt í lagi en við hefðum kosið að vera á sléttu gervigrasi. Það eru engar afsakanir, við vissum að þetta væri staðan og reyndum eins og við gátum að láta boltann ganga," segir Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks.
Blikar hafa fimm stig eftir þrjár umferðir og eru með markatöluna 2-1. Liðið hefur verið ansi bitlaust og ekki skapað sér mörg færi. Ólafur segist þó ekki hafa áhyggjur.
„Það er alveg hægt að segja það að eftir þrjá leiki þá höfum við ekki skapað mörg tækifæri. Ég hef samt ekki miklar áhyggjur. Það eru gríðarleg gæði sem búa í okkur, ég er bara brattur með þetta. Það eru það mikil gæði í hópnum að við eigum eftir að laga þetta."
Umræða hefur verið um þörf Breiðabliks á að styrkja sig sóknarlega fyrir gluggalok en Ólafur er ekki sammála þeirri umræðu.
„Mér finnst við bara þurfa að taka skref sem lið og vera hugaðri," segir Ólafur Ingi. Í viðtalinu segir hann einnig að ástæðan fyrir því að Ágúst Orri Þorsteinsson var ekki með í kvöld hafi verið vegna þess að hann er veikur.























