Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   mið 22. apríl 2026 21:47
Brynjar Ingi Erluson
Guardiola: Af hverju ætti ég að vera pirraður?
Pep Guardiola
Pep Guardiola
Mynd: EPA
Pep Guardiola, stjóri Manchester City á Englandi, er hæstánægður með að vera kominn á toppinn í fyrsta sinn síðan í ágúst.

Man City fór illa með færi í 1-0 sigrinum á Burnley í kvöld, en eitt mark dugði þó til að koma liðinu á toppinn.

Erling Braut Haaland skoraði það snemma leiks með laglegu marki, en þó Guardiola hafi viljað fleiri mörk gat hann ekki farið fram á mikið meira af leikmönnum sínum.

„Færin voru til staðar og sköpuðum nóg. Við spiluðum frábæran leik og gerðum allt eftir mjög krefjandi leik fyrir þremur dögum. Þannig þetta var krefjandi og alls ekki auðvelt. Við klúðruðum því að skora nokkur mörk hér, en það er enginn pirringur. Af hverju ætti ég að vera það? Við erum í efsta sæti deildarinnar.“

„Auðvitað getum við gert betur og skorað mörk. Strákarnir gerðu allt en við gátum bara ekki skorað. Við tókum engu sem sjálfsögðu og stóðum okkur bara vel,“
sagði Guardiola.

Var Man City liðið búið á því eftir leikinn gegn Arsenal um helgina?

„Ég gæti ekki verið meira ósammála. Við áttum betri frammistöðu þegar það kom að færum heldur en á sunnudag. Auðvitað er Arsenal stórkostlegur andstæðingur og við vitum það, en frammistaðan var mjög góð.“

Guardiola setur nú alla einbeitingu á undanúrslitaleikinn í enska bikarnum um helgina, en andstæðingurinn er B-deildarlið Southampton.

„Fimm leikir. Það eru fimm leikir eftir í ensku úrvalsdeildinni og það er bara raunveruleikinn. Núna eigum við hins vegar erfiðan undanúrslitaleik á laugardag.“

„Það er stórt tækifæri til að spila fjórða úrslitaleikinn í röð. Sjáum til hversu þreyttir við verðum og kannski þurfum við að gera einhverjar breytingar því leikmenn hafa spilað margar mínútur. Við vorum örlítið þreyttir í kvöld, en við erum samt klárir í þetta,“
sagði Guardiola.
Slapp
banner
banner