Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   mið 22. apríl 2026 22:21
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Yamal skoraði sigurmarkið og meiddist
Lamine Yamal gerði sigurmarkið og fór síðan meiddur af velli
Lamine Yamal gerði sigurmarkið og fór síðan meiddur af velli
Mynd: EPA
Barcelona 1 - 0 Celta
1-0 Lamine Yamal ('40 , víti)

Spánarmeistarar Barcelona eru aftur komnir með níu stiga forystu á toppi La Liga eftir 1-0 sigur á Celta Vigo á Camp Nou í kvöld.

Undrabarnið Lamine Yamal var nálægt því að skora eftir nokkrar sekúndur er Börsungar unnu boltann, en markvörður Celta Vigo sá við skoti hans.

Celta Vigo fékk tvö færi á nokkrum sekúndum í kjölfarið en Joan Garcia varði vel í tvígang. Sturluð byrjun á leiknum, en aðeins eitt mark var skorað og það gerði Lamine Yamal úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur.

Hann gaf síðan strax skilaboð á bekkinn um að hann gæti ekki haldið leik áfram og var því skipt af velli. Önnur meiðslin hjá Barcelona í leiknum, en stundarfjórðungi áður fór Joao Cancelo af velli.

Ferran Torres kom boltanum í netið í annað sinn fyrir Börsunga á 55. mínútu, en markið tekið af vegna rangstöðu og virkaði sá dómur ansi tæpur.

Celta Vigo fékk dauðafæri til að jafna á 70. mínútu er Pablo Duran slapp einn í gegn en aftur var Garcia vandanum vaxinn í markinu.

Börsungar mörðu 1-0 sigur og eru aftur komnir með níu stiga forystu á toppnum þegar sex umferðir eru eftir. Celta Vigo er í 7. sæti með 44 stig.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 35 30 1 4 91 31 +60 91
2 Real Madrid 35 24 5 6 70 33 +37 77
3 Villarreal 35 21 6 8 65 40 +25 69
4 Atletico Madrid 35 19 6 10 58 38 +20 63
5 Betis 35 13 15 7 54 43 +11 54
6 Celta 35 13 11 11 49 44 +5 50
7 Getafe 35 13 6 16 28 36 -8 45
8 Real Sociedad 35 11 11 13 54 55 -1 44
9 Athletic 35 13 5 17 40 51 -11 44
10 Vallecano 35 10 13 12 36 42 -6 43
11 Osasuna 35 11 9 15 42 45 -3 42
12 Valencia 35 11 9 15 38 50 -12 42
13 Sevilla 35 11 7 17 43 56 -13 40
14 Elche 35 9 12 14 46 54 -8 39
15 Mallorca 35 10 9 16 43 52 -9 39
16 Espanyol 35 10 9 16 38 53 -15 39
17 Girona 35 9 12 14 37 52 -15 39
18 Alaves 35 9 10 16 41 54 -13 37
19 Levante 35 9 9 17 41 57 -16 36
20 Oviedo 35 6 11 18 26 54 -28 29
Slapp
banner
banner