Nice tryggði sig inn í úrslitaleik franska bikarsins með því að vinna Strasbourg, 2-0, í kvöld.
Hinn 23 ára gamli Elye Wahi skoraði bæði mörk Nice gegn Strasbourg.
Fyrra markið gerði hann á 51. mínútu eftir sendingu frá Jonathan Clauss en seinna markið kom úr vítaspyrnu á 82. mínútu.
Þetta verður í fyrsta sinn síðan 2022 sem Nice spilar til bikarúrslita, en þá tapaði liðið fyrir Nantes.
Andstæðingur Nice í ár verður Lens, sem komst í bikarúrslit í fyrsta sinn í 28 ár með því að vinna öruggan 4-1 sigur á Toulouse í gær.
Úrslitaleikurinn er spilaður 22. maí, en liðin munu taka general-prufu þann 2. maí þegar þau eigast við í 32. umferð frönsku deildarinnar.
The Coupe de France final is set for May 22:
— B/R Football (@brfootball) April 22, 2026
Lens vs. Nice ???? pic.twitter.com/6E3bj2HH7h


