Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   mið 22. apríl 2026 19:30
Brynjar Ingi Erluson
Frakkland: Meistararnir með fjögurra stiga forystu - Kvaratskhelia skoraði tvö
Khvicha Kvaratskhelia skoraði tvö fyrir PSG
Khvicha Kvaratskhelia skoraði tvö fyrir PSG
Mynd: EPA
Paris Saint Germain 3 - 0 Nantes
1-0 Khvicha Kvaratskhelia ('13 , víti)
2-0 Desire Doue ('37 )
3-0 Khvicha Kvaratskhelia ('50 )

Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain eru með fjögurra stiga forystu á toppi frönsku deildarinnar þegar liðið á fimm leiki eftir.

Lærisveinar Luis Enrique unnu sannfærandi 3-0 sigur á fallbaráttuliði Nantes á Parc des Princes í kvöld.

Georgíumaðurinn Khvicha Kvaratskhelia kom þeim í forystu á 13. mínútu með marki úr vítaspyrnu áður en gulldrengurinn Desire Doue tvöfaldaði forystuna á 37. mínútu.

Kvaratskhelia gerði annað mark sitt og þriðja mark PSG snemma í síðari hálfleiknum.

PSG er á toppnum með 66 stig, fjórum stigum meira en næsta lið, þegar fimm leikir eru eftir á meðan Nantes er í næst neðsta sæti með 20 stig, níu stigum frá öruggu sæti og því nánast fallið niður um deild.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner