Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   mið 22. apríl 2026 20:11
Brynjar Ingi Erluson
Freysi með Brann í bikarúrslit - Íslendingaliðið á toppnum
Freysi er kominn í bikarúrslit!
Freysi er kominn í bikarúrslit!
Mynd: EPA
Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í Brann munu leika til úrslita um norska bikarinn í næsta mánuði en þetta varð ljóst eftir 2-1 sigur liðsins á Álasundi í kvöld.

Brann hefur byrjað deildina illa á þessari leiktíð, en gert frábæra hluti í bikarnum og í Evrópu.

Liðið komst í 32-liða úrslit í Evrópudeildinni og kom sér síðan í úrslitaleik bikarsins í kvöld.

Kristall Máni Ingason og Jón Dagur Þorsteinsson byrjuðu báðir á bekknum hjá Brann, en Jón Dagur kom inn af bekknum í síðari hálfleik. Ólafur Guðmundsson var í byrjunarliði Álasunds.

Fyrra mark Brann var sjálfsmark hjá Simen Haram og gerði Ulrik Mathisen seinna markið.

Sigurvegarinn mun mæta Bodö/Glimt í úrslitum, en leikurinn er spilaður 9. maí á Ullevaal-leikvanginum í Osló. Þar á Brann möguleika á að vinna bikarinn í áttunda sinn í sögu félagsins.

Júlíus Magnússon og Ari Sigurpálsson voru báðir í byrjunarliði Elfsborg sem vann Djurgården, 2-1, í 4. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar.

Elfsborg er á toppnum með 10 stig. Hlynur Freyr Karlsson kom þá inn af bekknum í 2-1 sigri Brommapojkarna á Örgryte. Brommapojkarna eru í 9. sæti með 5 stig.
Slapp
banner
banner