Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
banner
   mið 22. apríl 2026 22:00
Elvar Geir Magnússon
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík og Breiðablik gerðu jafntefli í 3. umferð Bestu deildarinnar í kvöld. Leikurinn var nánast tíðindalaus og markalaust í fyrsta grasleik Bestu deildarinnar þetta tímabilið.

Stefan Ljubicic sóknarmaður Keflavíkur missti af síðasta leik, gegn Fram, vegna meiðsla og það kom mörgum á óvart að sjá hann í byrjunarliðinu í kvöld.

Hann ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn í kvöld og fékk fyrst spurningu um hvernig hefði verið að spila þennan fyrsta grasleik tímabilsins?

Lestu um leikinn: Keflavík 0 -  0 Breiðablik

„Það var erfitt. Þetta er þungur völlur, það er apríl en þetta var allt í lagi. Við náðum að spila og þeir líka svo það er ekki hægt að væla."

Eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjum sínum er Keflavík komið á blað. Er Stefan ánægður með niðurstöðuna?

„Já og nei. Ég vildi þrjá punkta en fyrsta stigið er komið á blað, þetta er langt tímabil og mikilvægt fyrir okkur eftir að hafa tapað þremur leikjum í röð með bikarleiknum. Þetta er gott fyrir sjálfstraustið, á móti einu sterkasta liði í deildinni."

Var tæpt að hann næði að spila þennan leik?

„Ég æfði fyrir tveimur dögum og ákvað bara að prófa þetta. Ég er smá tognaður í liðböndum en það er bara teipað og maður tekur tvær til þrjár verkjatöflur og þá er maður bara góður."

Í viðtalinu ræðir hann um möguleika Keflavíkur á að halda sér í deildinni. Hann er bjartsýnn á að liðið geti það þó hópurinn sé frekar þunnskipaður og viðurkennir að það myndi hjálpa að fá inn liðsstyrk áður en glugganum verður lokað.
Slapp
banner