Atalanta 1 - 1 Lazio (1-2 eftir vítakeppni)
0-1 Alessio Romagnoli ('84 )
1-1 Mario Pasalic ('86 )
0-1 Alessio Romagnoli ('84 )
1-1 Mario Pasalic ('86 )
Edoardo Motta, markvörður Lazio, var óumdeilanlega maður leiksins þegar liðið komst í bikarúrslit á Ítalíu í kvöld, en hann varði fjórar vítaspyrnur er liðið hafði betur gegn Atalanta í vítakeppni.
Liðin gerðu 2-2 jafntefli í fyrri leiknum í Róm og var staðan 1-1 eftir venjulegan leiktíma í kvöld.
Alessio Romagnoli skoraði eftir hornspyrnu á 84. mínútu en Mario Pasalic svaraði fyrir Atalanta aðeins tveimur mínútum síðar.
Í framlengingunni komu Atalanta-menn boltanum í netið er Giacomo Raspadori mætti sendingu Davide Zappacosta og skallaði boltanum framhjá Motta í markinu sem var síðan tekið af vegna rangstöðu.
Staðan var jöfn þegar flautað var til loka seinni hluta framlengingarinnar og þurfti vítakeppni til að knýja fram sigurvegara en þar fór Motta hamförum í markinu og varði fjórar vítaspyrnu frá Atalanta.
Raspadori skoraði úr fyrstu vítaspyrnu Atalanta á meðan markvörður Atalanta sá við fyrstu spyrnu Lazio. Motta varði næstu fjórar spyrnur Atalanta á meðan Gustav Isaksen og Kenneth Taylor skoruðu fyrir Lazio til að fleyta þeim áfram í úrslitaleikinn þar sem liðið mætir Inter.
Ótrúleg frammistaða hjá Motta sem er aðeins 21 árs gamall, en hann tók nýlega við sem aðalmarkvörður eftir að Ivan Provedel meiddist á öxl.




