Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   mið 22. apríl 2026 20:30
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Nýkrýndir bikarmeistarar Sociedad töpuðu á heimavelli
Orri Steinn og félagar töpuðu
Orri Steinn og félagar töpuðu
Mynd: EPA
Diego Simeone hvíldi mikilvæga leikmenn í tapinu
Diego Simeone hvíldi mikilvæga leikmenn í tapinu
Mynd: EPA
Orri Steinn Óskarsson var í byrjunarliði Real Sociedad í 1-0 tapi gegn Getafe í La Liga í kvöld.

Sociedad varð bikarmeistari um helgina eftir sigur á Atlético Madríd í vítakeppni.

Orri Steinn og félagar leyfðu sér að fagna næstu daga, en voru slegnir niður á jörðina í kvöld.

Sociedad fékk fullkomið tækifæri til að komast yfir á 15. mínútu leiksins er liðið fékk vítaspyrnu en Brais Mendez setti boltann í stöng og þá fékk Orri Steinn færi stuttu síðar en hitti ekki boltann.

Eina mark leiksins var sjálfsmark Jon Gorrotxategi sem var reyndar stórglæsilegt. Fyrirgjöfin kom frá vinstri og inn á teiginn á Gorrotxategi sem skallaði boltanum aftur fyrir og í samskeytin.

Tuttugu mínútum fyrir leikslok voru Sociedad-menn nálægt jöfnunarmarki. Ander Barrenetxea átti góðan sprett vinstra megin, kom sér inn á teiginn og reyndi að koma honum á Orra en varnarmaðurinn las sendingu og náði að hreinsa frá í tæka tíð.

Tap niðurstaðan hjá Sociedad sem er í 8. sæti með 42 stig en Getafe komið upp í 6. sæti með 44 stig.

Diego Simeone stillti þá upp hálfgerðu varaliði í 3-2 tapi Atlético Madríd gegn Elche. Julian Alvarez, Koke og Julian Alvarez voru ekki með og þá var Antoine Griezmann á bekknum.

Annar deildarleikurinn í röð þar sem Simeone stillir ekki upp sínu sterkasta liði. Atlético er í 4. sæti með 57 stig en Elche upp úr fallsæti og komið í 15. með 35 stig.


Elche 3 - 2 Atletico Madrid
0-1 Nico Gonzalez ('10 )
1-1 David Affengruber ('18 )
2-1 Andre Silva ('33 , víti)
2-2 Nico Gonzalez ('34 )
3-2 Andre Silva ('75 )
Rautt spjald: Thiago Almada, Atletico Madrid ('30)

Real Sociedad 0 - 1 Getafe
0-0 Brais Mendez ('14 , Misnotað víti)
0-1 Jon Gorrotxategi ('29 , sjálfsmark)
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 32 27 1 4 86 30 +56 82
2 Real Madrid 32 23 4 5 67 30 +37 73
3 Villarreal 31 19 4 8 56 36 +20 61
4 Atletico Madrid 32 17 6 9 53 35 +18 57
5 Betis 32 12 13 7 48 40 +8 49
6 Celta 32 11 11 10 44 42 +2 44
7 Getafe 32 13 5 14 28 32 -4 44
8 Real Sociedad 32 11 9 12 49 49 0 42
9 Athletic 32 12 5 15 34 45 -11 41
10 Osasuna 32 10 9 13 37 39 -2 39
11 Espanyol 31 10 8 13 37 48 -11 38
12 Girona 32 9 11 12 35 48 -13 38
13 Valencia 32 9 9 14 35 47 -12 36
14 Elche 32 8 11 13 42 49 -7 35
15 Mallorca 32 9 8 15 40 49 -9 35
16 Vallecano 31 8 11 12 29 38 -9 35
17 Sevilla 31 9 7 15 39 51 -12 34
18 Alaves 32 8 9 15 36 48 -12 33
19 Levante 31 7 8 16 35 50 -15 29
20 Oviedo 31 6 9 16 24 48 -24 27
Slapp
banner
banner
banner