Viktor Jónsson var sáttur með sigur Þróttar gegn Gróttu fyrr í kvöld.
"Mér fannst við vera mjög solid í seinni hálfleik. Fyrri hálfleikurinn fannst mér ekki alveg nógu góður, mér fannst við ekki vera að átta okkur nægilega vel á pressunni. Við ætluðum að setja á þá hátt en vorum í smá vandræðum með miðjuna. En við náðum að átta okkur á því í seinni og þetta skilaði sigri."

Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 0 Grótta
Mörk Þróttar í kvöld voru bæði mjög vel framkvæmd. Viktor skoraði með góðum skalla eftir fyrirgjöf og Vilhjálmur bætti svo við marki eftir gott hlaup inn af kantinum. Viktor segir liðið meðvitað um styrkleika sína.
"Það sjá það allir að við erum mjög sterkir í krossunum, erum með mig þarna sem er mjög góður skallamaður og við náum að nýta það mjög vel og Villi er náttúrulega geggjaður á kantinum. Hann er svo góður í að strauja upp kantinn, taka menn á, kötta inn og skjóta. Þannig að auðvitað leggjum við upp með það og menn spila á sínum styrkleikum. Liðið nýtir það vel."
Fylkir tapaði áðan sem þýðir að Þróttur jafnar þá að stigum í öðru sæti deildarinnar. Viktor segir stefnuna vera beint upp í Pepsi.
"Það er ekkert annað í boði en bara beint upp aftur. Við bara klárum okkar leiki og svo sjáum við hvað taflan segir í lok tímabils."
Viðtalið má sjá í heild í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir