Framarar töpuðu fyrri leik sínum gegn Nömme Kalju frá Eistlandi í forkeppni Evrópudeildarinnar 0-1. Seinni leikurinn verður ytra eftir viku.
Þrátt fyrir ósigurinn telur Bjarni Guðjónsson, þjálfari Fram, að möguleikinn sé enn til staðar fyrir Fram.
Þrátt fyrir ósigurinn telur Bjarni Guðjónsson, þjálfari Fram, að möguleikinn sé enn til staðar fyrir Fram.
Lestu um leikinn: Fram 0 - 1 Nömme Kalju
„„Ég er mjög ánægður með liðið, þeir fá ekkert færi sem ég man eftir, nema þegar við klúðrum örlítið í þessu marki sem þeir skora. Við fáum nokkur tækifæri til að skora í þessum leik og því eigum við alveg að geta farið með hausinn uppi í leikinn úti," sagði Bjarni.
„Við eigum góðan séns gegn þessu liði og förum mjög bjartsýnir út í síðari leikinn.“
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.





















