Víkingar færðust enn nær Íslandsmeistaratitlinum þegar þeir báru 3-2 sigurorð af spræku liði Fram í Úlfarsárdal fyrr í dag. Leikurinn var hin fínasta skemmtun og fengu bæði lið góð tækifæri til að skora fleiri mörk. Arnar Gunnlaugsson var til viðtals eftir leikinn og sagði um hann.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 3 Víkingur R.
„Á endanum voru það einstaklingsgæði sem að tryggðu okkur þennan sigur í virkilega erfiðum leik. Fram kom inn í leikinn með mjög gott leikplan og gáfu okkur bara virkilega erfiðan leik. Ég veit ekki hvort að sigurinn hafi verið sanngjarn en ég tek hann.“
Lið Fram var mjög beinskeytt í í dag og voru varnarmenn Víkinga oft á tíðum í basli með öflugar sóknaraðgerðir þeirra, Kom upplegg Fram Arnari og Víkingum eitthvað á óvart?
„Þeir voru djarfari á að stíga á okkur sem að við að sama skapi vorum klaufar að nýta okkur ekki betur í fyrri hálfleik. Mér leið í fyrri hálfleik eins og við gætum skorað í hvert skipti sem við nálguðumst vítateig þeirra en við gerðum það ekki nægjanlega oft og vorum ekki nógu klínískir þegar við gerðum það.“
Framundan er landsleikjahlé og eflaust kærkomin hvíld fyrir marga leikmenn liðsins. Næstu verkefni eru þó af stærri endanum. bikarúrslitaleikur auk þess sem Víkingar geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrstu umferð úrslitakeppninar á heimavelli þar sem liðið mætir KR 20.september næstkomandi.
„Næstu tveir leikir eru mjög stórir leikir í sögu Víkings. Bæðu að geta tryggt okkur bikartitilinn og svo í fyrstu umferð úrslitakeppninar með heimaleik gegn KR að geta tryggt okkur Íslandsmeistaratitilinn í fyrstu atrennu. En byrjum á bikarúrslitum gegn KA þar sem við fáum góðan tíma til að undirbúa okkur þannig að við verðum klárir í þann leik.“
Sagði Arnar en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan.





















