Carlo Ancelotti stýrði brasilíska landsliðinu í fyrsta sinn í nótt en það var engin draumabyrjun.
Liðið heimsótti Ekvador í undankeppni HM og var leikurinn frekar lokaður og lauk með markalausu jafntefli.
Liðið heimsótti Ekvador í undankeppni HM og var leikurinn frekar lokaður og lauk með markalausu jafntefli.
Julian Alvarez var hetja Argentínu sem lagði Síle 1-0 og þá vann Paragvæ 2-0 gegn Úrúgvæ. Matías Galarza kom liðinu yfir og Julio Enciso innsiglaði sigurinn með marki úr vítaspyrnu.
Úsbekístan tryggði sér sæti á HM í fyrsta sinn eftir markalaust jafntefli gegn Sameinuðu arabísku furstadæmunum í undankeppninni í Asíu. Abdukodir Khusanov, varnarmaður Man City og Eldor Shomurodov, framherji Roma, eru meðal leikmanna liðsins.
Athugasemdir