Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
Gummi Magg: Erum mættir til að skrifa söguna
Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi
Arnór Gauti: Mun aldrei gleyma lokaflautinu á Laugardalsvelli
Sameiningaviðræður ÍR og Leiknis: Sumir láta hreinlega tilfinningarnar ráða
Gylfi Tryggva: Höfum sótt einn leikmann innanlands og það var landsliðsmaður
Óskar Smári: Klúbburinn hefur þróast í rétta átt
Markadrottningin komin heim: Voru möguleikar úti en Breiðablik besti kosturinn
   fös 05. ágúst 2016 14:35
Magnús Már Einarsson
Viðtal
Helgi Kolviðs: Mikilvægt að við tökum næsta skref
Helgi Kolviðsson var kynntur sem aðstoðarþjálfari í dag.
Helgi Kolviðsson var kynntur sem aðstoðarþjálfari í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helgi og Heimir saman á fundinum í dag.
Helgi og Heimir saman á fundinum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helgi Kolviðsson var í dag ráðinn aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands. Helgi verður aðstoðarmaður Heimis Hallgrímssonar í undankeppni HM 2018. Helgi starfaði með íslenska landsliðinu á EM í Frakklandi og er nú orðinn aðstoðarþjálfari.

„Þetta er spennandi fyrir mig. Ég hef verið í félagsliðum í 25 ár í röð og þetta er öðruvísi," sagði Helgi þegar hann settist niður og ræddi málin við Fótbolta.net í dag. „Þegar þetta kom upp þá þurfti ég ekki að hika."

Hefur þekkt Heimi lengi
Helgi og Heimir hafa þekkst í yfir 25 ár eða síðan þeir voru báðir að hefja fótboltaferil sinn.

„Ég hef þekkt Heimi lengi. Eyjapeyjarnir fengu að æfa með ÍK á sínum tíma þegar þeir voru hér í bænum. Mér líst vel á Heimi, alla í kringum KSÍ og liðið. Nú er mikilvægt að við tökum næsta skref," sagði Helgi en íslenska landsliðið hefur leik í undankeppni HM í næsta mánuði.

„Allt í kringum lokakeppnina var frábært. Það er gaman að vera Íslendingur í dag. Maður á að njóta þess, en nú er mikilvægt að byrja á núlli. Við erum í mjög erfiðum riðli. Núna einbeitum við okkur að Úkraínu og það er næsta skref."

Ekki í fríi í 25 ár
Helgi hefur þjálfað í Austurríki og Þýskalandi undanfarin tíu ár en hann fór beint að þjálfa eftir að skórnir fóru á hilluna. Hann hefur því ekki náð að mæta á marga landsleiki undanfarin ár.

„Ég hef ekki verið í fríi í 25 ár og hef haft lítinn tíma. Það var helst þegar landsliðið var að spila erlendis að ég reyndi að komast á leikina. Ég fór á leikina sem voru í kringum Austurríki og Þýskalandi."

Getur heimsótt leikmenn
Helgi er búsettur í Þýskalandi og hann mun kíkja á leiki hjá landsliðsmönnum í Evrópu.

„Ég get fylgst vel með strákunum erlendis. Þetta eru stuttar vegalengdir fyrir mig og ég get heimsótt leikmenn og rætt við þá. Mér fannst æðislegt þegar ég spilaði með landsliðinu að það var alltaf haft samband við okkur til að spyrja hvort hefði gengið vel eða ekki. Ég vona að við getum aðstoðað strákana líka í sinni vinnu."

Helgi segir að tæknin hjálpi honum og Heimi að hafa gott auga með öllum leikmönnum og þeir geta starfað vel saman þó að þeir búi í sitthvoru landinu. Helgi segir að tæknin sé alltaf að breytast í boltanum.

„Maður fer á námskeið 2-3 á ári og maður er alltaf að læra eitthvað nýtt. Ef þú tekur ekki þátt í þessum námskeiðum þá dettur þú aftur úr. Maður þarf stanslaust að sjá til þess að maður verði betri, sé með allt það nýjasta og tilbúinn."

Gat ekki svarað öllum eftir EM
Helgi var mikið í viðtölum í Þýskalandi og Austurríki eftir frábæran árangur Íslands á EM í sumar.

„Ég gat ekki svarað öllum, það var ekki hægt. Þetta var rosalega jákvætt og það er það ennþá í dag. Það var allt svo jákvætt í kringum þetta og ég held að það hafi skilað svo miklu inn í fótboltann. Ekki bara úrslitin heldur líka hvernig við vorum að haga okkur. Þetta var allt það jákvæða sem á að vera í íþróttum," sagði Helgi að lokum.

Helgi verður í ítarlegu viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu á 97,7 á morgun milli 12 og 14.
Athugasemdir
banner
banner
banner