Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, ræddi við Fótbolta.net í dag. Hann var spurður út í framherjamálin og var hann sérstaklega spurður út í Pétur Theodór Árnason.
Pétur er stór og stæðilegur framherji sem er á deginum gríðarlega öflugur leikmaður og illviðráðanlegur. Pétur hefur verið mjög óheppinn með meiðsli á sínum ferli og settu meiðsli strik í reikninginn á síðasta tímabili þegar hann var á láni hjá Gróttu. Hann var kominn með sex mörk í níu leikjum á síðasta tímabili þegar hann meiddist. Pétur er 28 ára og á eitt ár eftir af samningi sínum við Breiðablik.

Algjör bónus ef hann tekur einhvern þátt
Varðandi kosti í stöðu fremsta manns, hvernig lítur Pétur Theodór Árnason út í dag?
„Pétur er á erfiðum stað á sínum ferli. Hann hefur slitið þrisvar og lenti í hnémeiðslum síðasta sumar eftir að hafa komið sér af stað með Gróttunni. Hann er að skokka og senda og byggja upp grunnform. Það er engin pressa á honum og algjör bónus ef hann tekur einhvern þátt í þessu með okkur," Dóri.
„Eins og staðan er núna, þá er hann þannig lagað á byrjunarreit sem er auðvitað mikil synd því það var ekki af ástæðulausu sem við fengum hann í Breiðablik á sínum tíma. Hann er náttúrulega frábær leikmaður í teignum, hefði getað nýst okkur mjög vel og ef allt fer á besta veg þá getur hann ennþá gert það. Við gerum þetta bara í góðri samvinnu með honum, í algjörum rólegheitum og sjáum á næstu vikum og mánuðum hvernig þetta þróast hjá honum."
Athugasemdir