Í gær tilkynnti Halmstad að félagið væri búið að festa kaup á Gísla Eyjólfssyni. Gísli kemur frá uppeldisfélagi sínu Breiðabliki.
Fótbolti.net ræddi við Halldór Árnason, þjálfara Breiðabliks, í dag og spurði hann út í Gísla.
Fótbolti.net ræddi við Halldór Árnason, þjálfara Breiðabliks, í dag og spurði hann út í Gísla.
Gísli er 29 ára, var algjör lykilmaður hjá Breiðabliki og ekkert alltof mikið sem benti til þess að hann gæti verið á leið aftur út. Gísli prófaði sig í Svíþjóð árið 2019 en var einungis hálft ár úti. Það er ekki algengt að leikmenn á þessum aldri fari út í atvinnumennsku.
Hvenær vissi Dóri að möguleiki væri á því að Gísli færi út og hvernig eru samtölin við hann?
„Ég vissi það bara í síðustu viku, það kom óvænt upp. Samtölin voru góð, við vildum auðvitað halda honum. Hann var einn af þeim sem var að renna út á samning. Við vildum gera við hann samning sem hann væri sáttur við. Ég heyrði hins vegar að hann var gríðarlega spenntur fyrir þessu tækifæri, áttaði sig á því að þetta væri ekki sjálfgefið þegar maður er 29 ára og ekkert víst að þetta komi upp aftur. Við ætluðum okkur aldrei nokkurn tímann að standa í vegi fyrir honum eða tala hann af því að fara út. Þegar maður heyrði að hans hugur væri að keyra á þetta og fjölskyldan sátt við það þá studdum við hann í því og samgleðjumst með honum að fá þetta tækifæri," sagði Dóri.
„Gísli hefur verið með okkur öll þessi ár, lagt á sig gríðarlega vinnu og verið stór hluti af þessari velgengni sem hefur átt sér stað hjá Breiðabliki síðustu ár. Við erum gríðarlega ánægðir fyrir hans hönd, en að sama skapi er mjög leiðinlegt að missa hann."
„Ég held að í tilfelli Gísla, Davíðs og Antons hjálpi það gríðarlega hvernig þeir spiluðu í Sambandsdeildinni. Þeir voru að spila á móti þekktum alþjóðlegum stórliðum. Gísli er með hraða og kraft sem andstæðingar hans áttu ekki roð í. Félög verða spennt og sjá að það sé eitthvað í þessum leikmönnum. Þessi gluggi var risastór fyrir okkar leikmenn," sagði Dóri að lokum.
Athugasemdir




