Fulham er úr leik í enska bikarnum eftir tap gegn Championshipliði Southampton.
Ross Stewart skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu undir lokin en Fulham fékk mörg góð tækifæri til að skora. Marco Silva gerði níu breytingar á liðinu frá 1-0 tapi gegn West Ham í deildinni. Hann var spurður að því hvort það hafi haft slæm áhrif.

„Ég skil það, þetta er meira en það. Þetta var slæmur dagur fyrir okkur og aðdáendur okkar. Við þurfum að skoða þetta betur því ég er alls ekki ánægður með það sem gerðist í dag," sagði Silva.
„Þetta er meira en bara tap, ef það er vegna breytinganna þá er það fínt, ég skil það - en [Ryan] Sessegnon og [Timothy] Castagne hafa spilað á þessu tímabili gegn liðum í ensku úrvalsdeildinni, Oscar Bobb og Samuel Chukwueze eru á sama stigi. Við verðum að skoða þetta betur. Ég skil að ég ber ábyrgðina á að gera breytingarnar.“
Athugasemdir