„Doumbia var að reyna að toga mig niður og hann náði mér næstum því. Liðsfélagar mínir segja að ég sé kraftmikill og gefist aldrei upp og ég náði að skora," sagði Kennie Chopart, hetja KR-inga, í 1-0 sigri á FH í kvöld.
Kennie skoraði sigurmarkið þegar átta mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma og hann var ánægður í leikslok.
Kennie skoraði sigurmarkið þegar átta mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma og hann var ánægður í leikslok.
Lestu um leikinn: FH 0 - 1 KR
„Við höfum lagt hart að okkur. Þetta hefur ekki fallið með okkur en það gerði það núna og þetta er besta tilfinningin."
KR stökk upp í 7. sæti með sigrinum í kvöld en hversu langt getur liðið náð í sumar?
„Við tökum einn leik í einu. Við byrjuðum ekki vel en þetta er að koma núna. Við erum að berjast, spila góðan fótbolta og standa vörnina vel. Við tökum einn leik í einu og sjáum hvar við stöndum í lok tímabils."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















