Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mán 08. janúar 2024 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sky í Þýskalandi 
Cole Campbell og efnilegasti leikmaður Þýskalands brutu reglur - Ekki með á morgun
Paris Brunner í leik með U17 ára landsliði Þýskalands
Paris Brunner í leik með U17 ára landsliði Þýskalands
Mynd: EPA
Hinn ungi og efnilegi Cole Campbell verður ekki með aðalliði Borussia Dortmund í síðasta æfingaleiknum á Marbella á morgun þar sem hann og Paris Brunner, einn efnilegasti leikmaður Þýskalands, brutu reglur um útivistartíma. Sky í Þýskalandi greinir frá.

Cole Campbell kom til Dortmund frá Breiðabliki fyrir einu og hálfu ári en hann er talinn með efnilegustu leikmönnum Íslands um þessar mundir.

Hann hefur verið sjóðandi heitur með yngri liðum Dortmund undanfarna mánuði og fékk því tækifæri með aðalliðinu í æfingaferð liðsins á Marbella.

Cole spilaði sinn fyrsta leik með aðalliðinu í æfingaleik um helgina í 2-2 jafntefli gegn AZ Alkmaar, en hann og Brunner verða ekki með á morgun í síðasta æfingaleik ferðarinnar.

Sky segir að þeir hafi brotið reglur um útivistartíma en leikmenn sem hafa ekki náð 18 ára aldri mega ekki yfirgefa herbergi sín eftir klukkan tólf og er sagt að þeir hafi ekki virt þær reglur. Þjálfaralið Dortmund greip þá glóðvolga og verður þeim refsað.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Brunner brýtur agareglur Dortmund en hann var settur í bann í október fyrir svipað athæfi.

Brunner var besti leikmaður HM U17 ára landsliða á síðasta ári er liðið vann keppnina og á Evrópumótinu þar sem hann endaði einnig markahæstur, en hegðunarvandamál hafa skyggt á árangur hans.

Sky segir að leikmennirnir verði ekki með á æfingu aðalliðsins í dag og taka þá ekki þátt í leiknum á morgun, en óvíst er hvort þeim verði refsað frekar.

Borussia Dortmund vildi ekki tjá sig um atvikið er Sky hafði samband við félagið í gær.
Athugasemdir
banner
banner