Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 09. mars 2023 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Var Jesus með í fluginu?
Jesus í leik á þessu tímabili.
Jesus í leik á þessu tímabili.
Mynd: Getty Images
Arsenal, topplið ensku úrvalsdeildarinnar, flaug í gær yfir til Lissabon þar sem liðið mun spila við Sporting frá Portúgal í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Sóknarmaðurinn Gabriel Jesus er byrjaður að æfa aftur með Arsenal eftir langvinn meiðsli. Hann var á æfingu í gær áður en flogið var til Portúgal.

En var hann með í fluginu til Portúgal? Mikel Arteta, stjóri Arsenal, gaf ekkert upp þegar fréttamenn spurðu hann út í það.

„Þið fáið fréttir um liðið á morgun. Þið sjáið á morgun hvaða leikmenn geta spilað í leiknum," sagði Arteta en Arsenal birti myndir á samfélagsmiðlum í gær af leikmönnum á leið upp í flugvélina. Jesus sást ekki á þeim myndum.

Arteta hefur talað um það að Arsenal muni fara varlega með Jesus þrátt fyrir aðrir sóknarmenn séu meiddir þessa stundina.

Fyrri leikur Arsenal og Sporting verður flautaður á klukkan 17:45 í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner