Í Fossvogi hafði Víkingur, sem er að undirbúa sig undir mikilvægan leik við Malmö, betur gegn ÍA. Víkingar skoruðu þrjú mörk en gestirnir af Skaganum gáfust aldrei upp.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 - 2 ÍA
„Tilfininginn svona stuttu eftir leik er nátturlega bara vont bragð í munninum. Byrjun okkar í leiknum hún var mjög hikandi og hægar varnarfærslur og svo bara trú og sjálfstraust sem okkur bara skorti fyrsta hálftímann en svo svona aðeins vöknum við til lífsins síðasta korterið í fyrri hálfleik og svo auðvitað bara frábær innkoma hjá Inga og ungu strákunum." Sagði Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA eftir leikinn í dag.
„Hvernig við klárum leikinn í raun og veru síðustu 60 mínúturnar eru virkilega góðar og kröftugar, öflugar og það er annað og okkur fannst mörkin sem við fáum á okkur soft. Það er þriðja markið sem sem við fáum á okkur það er í raun tvær tæklingar inni í vítateignum okkar sem að við erum að tapa og það auðvitað bara má ekki."
Jón Þór gaf ungum leikmönnum í leiknum tækifæri sem skiluðu svo sannarlega traustinu þegar Ingi Þór Sigurðsson skoraði 2 mörk eftir sína innkomu.
„Já og ekki bara það, það hefur verið gríðarlega flottur stígandi hjá Inga síðustu vikur og við höfum tekið eftir því og það er bara virkilega flott hvernig hann er að ná að skila því inn á völlinn."
Skagamenn hafa sótt tvo leikmenn í glugganum en Jón Þór á ekki von á frekari styrkingum.
„Ekki eins og staðan er akkurat núna, nei"
Nánar er rætt við Jón Þór Hauksson í spilaranum hér fyrir ofan.
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |























