„Ég sé um svona fyrstu 15-20 mínúturnar á hverri æfingu, sé um að koma þeim í gang. Svo er ég að sjá um GPS mælana og svo er ég bara með 'overall fitnessið'," sagði Guðrún Þórbjörg Sturlaugsdóttir, kölluð Dúna, á æfingu í Crewe í dag.
Dúna er styrktarþjálfari landsliðsins og fengu fjölmiðlar tækifæri til að ræða við hana á æfingasvæðinu.
Dúna er styrktarþjálfari landsliðsins og fengu fjölmiðlar tækifæri til að ræða við hana á æfingasvæðinu.
Dúna var spurð sérstaklega út í Kára Árnasonar, fyrrum landsliðsmanns, á dögunum þar sem hann gagnrýndi það að landsliðsmenn væru að hafa gaman í leikjum á æfingasvæðinu.
Undirritaður hefur tekið eftir því að það er alls ekki leiðinlegt þegar Dúna sér um æfingarnar.
Sjá einnig:
Ekki sáttir við klippur af æfingum - „Ég þoldi ekki svona"
„Áhugavert, hver dæmir fyrir sig. Fyrir mitt leyti getur upphitun verið leiðinleg og það er ótrúlega mikilvægt að byrja æfingu vel. Mér finnst þetta líka ótrúlega gott tækifæri til að þjappa hópnum saman, að búa til einhverja keppni og búa til gaman. Þetta er ekki öll æfingin, þetta er bara stuttur hluti af æfingunni. Þetta er nauðsynlegt, það má alveg hafa gaman."
„Svo er restin af æfingunni bara taktík og svoleiðis. Mér finnst þetta allt í góðu," segir Dúna.
Hún segir þetta mikilvægt til að byggja upp liðseininguna. Hægt er að horfa á allt viðtalið í spilaranum hér fyrir ofan.
Leikir Íslands á EM:
10. júlí gegn Belgíu (Academy Stadium, Manchester)
14. júlí gegn Ítalíu (Academy Stadium, Manchester)
18. júlí gegn Frakklandi (New York Stadium, Rotherham)
























