Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   þri 12. maí 2026 19:12
Brynjar Ingi Erluson
Casillas: Ég vil ekki sjá Mourinho hjá Real Madrid
Jose Mourinho og Iker Casillas
Jose Mourinho og Iker Casillas
Mynd: EPA
Iker Casillas, fyrrum markvörður Real Madrid og spænska landsliðsins, er alfarið á móti því að félagið fái Jose Mourinho aftur í þjálfarastólinn.

Samkvæmt erlendum miðlum er aðeins tímaspursmál hvenær Real Madrid tilkynnir endurkomu hans.

Hann er að einbeita sér að því að klára tímabilið með Benfica í heimalandinu. Að því loknu mun hann væntanlega skrifa undir hjá Madrídingum.

Margir fagna mögulegri endurkomu hans til Real Madrid, en það er alla vega einn maður á móti henni. Það er goðsögnin Casillas sem lék með félaginu í 25 ár og var lengi vel fyrirliði þess.

Mourinho var maðurinn sem tók Casillas út úr byrjunarliðinu í desember 2012. Stuttu eftir það meiddist hann, en Mourinho yfirgaf Madrídinga árið 2013. Casillas entist hjá Real Madrid í tvö ár til viðbótar áður en hann var látinn fara frá félaginu.

„Ég hef ekkert út á Mourinho að segja. Hann virðist eins og alger fagmaður, en ég vil hann ekki hjá Real Madrid. Aðrir þjálfarar væru betur í stakk búnir að stýra félagi lífs míns.“

„Þetta er bara mín persónulega skoðun og ekkert meira en það,“
sagði Casillas á X.
Slapp
banner
banner